fuglaveiðarnir mínir o.fl
27.1.2010 | 12:31
Oh ég er búin að vera svoooooo stolt af því að eiga kisur sem veiða bara laufblöð en svo kom að því að ég fann dauðan fugl í íbúðinni! Þegar við fórum framúr í gærmorgun þá sat Einstein uppí sófa,
eins og kóngur í ríki sínu umvafinn fjöðrum og dauður fugl á gólfinu! Mér brá ekkert smá mikið og var í alvörunni næstunni því farin að gráta af geðshræringu! Sem betur fer á ég yndislegan macho kæró sem ákvað að taka málin í sínar hendur og þreif upp hræið og með því, á meðan ég var að klæða mig og gera klára fyrir vinnuna og ná púlsinum aftur niður...! Ég varð samt pínu forvitin og fór að kanna málið, og þá lá Albert á gólfinu með fjöður standandi út um munnvikin. Þannig að það sem hefur líklegast gerst er að Albert hefur veitt fuglinn en Einstein reyndi að eigna sér heiðurinn! Allavega lá hann voða stoltur af sjálfum sér innan um allar fjaðrirnar..! 
Ég varð samt pínu pirruð út í fuglinn og tuðaði upphátt:"oh heimski fugl, heyrðirðu ekki bjöllunum??" Þá heyrist í Hugo:"já hann hlýtur að hafa verið mjöööög heimskur fyrst hann lét kettina þína veiða sig..!"
Og það er eiginlega bara þannig, ef þú ert fugl sem lætur einn þrífættan kött og einn offitusjúkling veiða þig, þá áttu eiginlega bara soldið skilið að vera veiddur er það ekki??
Annars ekkert nýtt að frétta, handboltaleikur í kvöld og á föstudagskvöldið, handboltamót um helgina, fös, lau og sun! Yngra árið mitt vann mótið sitt síðustu helgi, rosa gaman að sjá framfarirnar hjá þeim, og þær voru ekkert smá ánægðar þar sem þetta var í fyrsta sinn sem þær fá gullmedalíu
Eldra árið spilar svo næstu helgi í móti með fáránlegri leikjaniðurröðun, flokknum var skipt upp í yngra og eldra ár til að minnka álagið á helgunum, þannig að í stað 5 móta yfir árið eru nú 10 mót. Gallinn er hins vegar sá að mér finnst álagið bara hafa aukist ef eitthvað er! Ég á leiki á fös, lau og sun þannig að helgin er hvort sem er "ónýt". Nottla ekki ónýt þar sem handboltinn er með tilgangi, en ónýt þannig að ekki er hægt að skipuleggja neitt annað, og nú á það orðið við um 10 helgar í stað 5 áður..!
En jæja, nóg af tuði, ég valdi mér víst þessa handboltaþjálfun sjálf og hef mjög gaman af henni, svona oftast 
Þannig að helgin verður ansi busy, handboltamótið byrjar á fös kl.15:00, þá um kvöldið er svo handboltaleikur hjá mér í meistaraflokki og svo matarboð um kvöldið. Á laugardeginum fer ég fyrst að þjálfa í Sporthúsinu, svo handboltamótið, svo afmæli hjá Tinnsu minni um kvöldið. Ég á svo tvo leikina á mótinu á sunnudagsmorgninum, klárast hjá okkur á hádegi og þá fæ ég loksins helgarfríið mitt..! 
Jæja, best að halda áfram að vinna, later...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
blogg um nákvæmlega ekkert..!
21.1.2010 | 12:42
Jæja jæja, ætli það sé eki kominn tími á eitt stykki blogg! Eftir að facebook kom til sögunnar þá hefur bloggmenning Íslendinga heldur betur dregist saman og það hafa komið tímapunktar þar sem ég hef spáð í hvort ég eigi hreinlega að hætta að blogga. En þar sem mér finnst ótrúlega gaman að lesa hvað ég var að sprella í fortíðinni þá ákvað ég að henda inn eins og einni og einni færslu til að eiga minningar fyrir sjálfa mig, þegar nútíðin verður orðin fortíðin 
En já, ýmsar getgátur hafa verið uppi um af hverju dregið hefur svona mikið úr bloggfærslum uppá síðkastið og flestir hafa haft rétt fyrir sér, hugurinn er bara ekki alveg við internetið þegar ég hef frítíma
En reyndar hef ég ekkert rosa mikinn frítíma, það fylltist allt í einkaþjálfuninni og svo eru handboltinn og skólinn á fullu. Handboltatúrneringar næstu 2 helgar og 5 leikir með meistaraflokki á 2 vikum. Skíttöpuðum bikarleik gegn Fram í gær en höfum unnið alla okkar leiki í 2.deildinni so far, þannig að það er ennþá allt á góðu rólu. Set hérna enn eina fáránlega töff myndina af mér úr handboltaleik, þessi er sennilega verst, en ég læt hana bara vaða þar sem ég þarf hvort sem er ekki að hafa áhyggjur af því lengur að eignast ekki kærasta vegna ógeðismyndanna af mér..!
Oh ég get ekki sett inn ógeðslegustu myndina, en hérna eru myndir úr síðasta leik, ég mæli sérstaklega með mynd nr.30! hehe En HÉRNA er linkurinn, enjoy 
Hef ekkert meira að segja, ætlað að koma með eina kúkapössunarsögu en áttaði mig svo á því aðþað er sennilega ekki við hæfi svona á veraldarvefnum..! Later peepz...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta færslan á þessu ári..!
11.1.2010 | 08:42
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á eins og eitt stk blogg!
Þó að það sé lítið liðið af árinu þá er alveg fáránlega mikið búið að gerast! Ég var viss um að þetta yrði fáránlega gott ár og ef fram heldur sem horfir þá verður þetta besta ár ever
En já, fer ekkert alveg ofan í details alveg strax... 
Allt komið á fullt vinnulega séð, nánast orðið fullt hjá mér í einkaþjálfuninni og kennslan komin í gang og handboltinn að byrja aftur, fyrsti leikur á morgun, hlakka ekkert smá til
Soldið fyndið, ég var heima í gær AÐ ELDA, hvort sem þið trúið því eða ekki, en þá var bankað á dyrnar hjá mér. Fyrir utan voru þrjár 13 ára stelpur sem spurðu hvort að ég væri ekki svona íþróttafræðingur og handboltakona. Það hefði nefnilega ein kona í húsalengjunni sagt þeim að það væri flutt þangað íþróttakona, þannig að þeim langaði að koma og hitta mig!
hahahahah ekkert smá fyndið, kellan bara orðin celeb í götunni..! eða svona kind of... 
Ég fór í heimsókn til Þórunnar sys í fyrradag að hitta litla snúð, og vá hvað ég féll fyrir honum! Hann er algjört æði! Meira fullkominn heldur en þegar ég sá hann fyrst!
Hann reyndar ældi yfir mig alla, þannig að ég þurfti að fá lánaðar buxur af Sindra, 12 ára frænda mínum, til að fara í heim, en það var bara krúttlegt
Svo átti Óskar Dagur afmæli og var að halda uppá það í gær, orðinn 10 ára!! Vá hvað tíminn er fljótur að líða! En þetta litla gerpi er klárlega eitt það besta sem hefur komið fyrir mig í lífinu, breyttist heill hellingur eftir að hann fæddist, litli engillinn minn
Þessi mynd er frá því að hann var eins árs, sem mér finnst að hafi verið fyrir 3-4 árum í mesta lagi! Og svo er fyrri myndin tekin fyrir sennilega 2 árum, þegar við vorum í ruglinu að sprella eitthvað, mjög eðlileg alltaf hreint..! 
Jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti, mætti klukkutíma of snemma í vinnuna
later peepz...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2009
31.12.2009 | 16:44
Ég var eitthvað að spá í hvort ég ætti að nenna að gera samantekt um árið, en svo fór ég að skoða myndir og fattaði að það er heill hellingur búið að gerast, þannig að ég ákvað að taka það saman 
Það fyrsta markverða sem gerðist á árinu var að ég varð þrítug þann 10.febrúar og þar sem við vinkonurnar erum allar fæddar á því herrans ári þá ákváðum við að skella okkur í myndatöku í tilefni þess og svo til Berlínar aðeins síðar á árinu. Berlín var æði og ég er endalaust þakklát fyrir að eiga þessar stelpur í lífi mínu. Ég kynntist þeim þegar ég skipti yfir Val þegar ég var 17 ára og þær eru bestu vinkonur sem hægt er að eiga. Erum jafn ólíkar og við erum margar, en smellum saman eins og flís við rass sem hópur 
Í apríl byrjaði ég að vinna á leikskólanum Austurborg og var þar í sumar. Mér fannst það æði, frábært fólk sem ég vann með, og ég dýrka að vinna með litlum börnum, algjörir snillingar
En jafn fúlt og það er þá er bara eiginlega ekki hægt að lifa á þeim launum sem boðið er uppá í þessu, að mér finnst, einu mikilvægasta starfi sem til er. Það hljóta allir að vilja að það sé hugsað sem best um börnin okkar, en launin eru í engu samræmi við ábyrgð. Ótrúlegt hvað við höfum samt hæft og frábært starfsfólk í þessari stétt 
Ég fékk mér 2 kisur í apríl, 2 mánaða kettlinga sem hafa síðan þá í ófá skipti ratað hér inná síðuna mína! Meira að segja svo að sumum finnst nóg um..! En kisurnar mínar eru ein besta ákvörðun ævinnar! (enda ekki alltaf þekkt fyrir að taka góðar ákvarðanir í lífinu!! hehe) en já, Albert og Einstein eru bestu kisurnar mínar í heiminum
Mér finnst fyrri myndin svooooo lýsandi fyrir þá bræður, Einstein í ruglinu þarna fyrir framan Albert sem horfir geðveikt íhugull á mann fyrir aftan!! Og svo er seinni myndin nottla sætust í heimi, hún er ekki uppstillt, ég kom að þeim svona í sófanum, algjörar kelirófur..!
Eitt það markverðasta á árinu var að ég útskrifaðist sem
íþróttafræðingur frá HR og það er sennilega mesti gleðidagur lífs míns! Ekki af því að námið var svo æðislegt (þó að námið hafi alveg verið fínt sko) heldur af því að ég var svo fegin að það var búið..! Án þess að ég ætli að fara út í nánari details 
í sumar fór ég til Svíþjóðar á handboltamót með handboltastelpurnar mínar úr Val, það var rosa gaman, þykir alltaf ótrúlega vænt um þessar stelpur.
Í haust fór svo að draga til tíðinda. Fyrst fékk ég vinnu við að kenna í Flensborg, reyndar bara 50% staða en mér finnst það æði. Frábær mórall þar og svo finnst mér alltaf ótrúlega gaman að vinna með unglingum
Svo fékk ég símtal frá Gróttu þar sem ég var beðin um að koma og þjálfa og ég sagði bara já! Skynsemin uppmáluð, bý í Breiðholti, þjálfa í Sporthúsinu-Kópavogi, kenni í Flensborg- Hafnarfirði og þjálfa og spila handbolta með Gróttu - Seltjarnarnesi!! Eins gott að bensínverðið er svona lágt..!
En ég segi einmitt oft að ég geri ekki annað en að þjálfa, kenna og taka bensín
En lífið í Gróttu er búið að vera ótrúlega skemmtilegt, rosa góður andi þarna og nottla endalaust skemmtilegast í heimi að geta æft og spilað handbolta "af krafti" (miðað við aldur og fyrri störf!), og enn skemmtilegra þar sem allt gengur jafn vel og það gerir...
Í haust var svo keyrt á hann Einstein minn þar sem framlöppin á honum mölbrotnaði og afturlöppin brotnaði líka en ekki jafn illa. Ég þurfti í kjölfarið að taka ákvörðun um að svæfa hann eða setja í rándýrar aðgerðir, þar sem m.a framlöppin yrði fjarlægð. Ég bara gat ekki hugsað mér að láta svæfa litla snillinginn minn og á þess vegna núna lítinn, þroskahamlaðan þrífættan kött 
Um svipað leyti lenti ég svo í einu steiktasta atviki ævi minnar þegar ég fékk send 23 skópör frá ástsjúkum Svía sem hafði addað mér á facebook! En ég er búin að segja þessa sögu svo oft að ég nenni því ekki einu sinni enn, en hún rataði m.a á síður Séð&Heyrt (sjáið glitta í mig þarna neðst á forsíðunni, þekkið mig á gullskónum! hehe)...
Í lok árs komu svo besti tíðindi í heimi!! Þórunn systir eignaðist lítinn jólastrák
Hann lét alveg bíða eftir sér litli snúllinn, en svo þegar hann loksins kom þá birtist þessi fullkomni 17 marka snáði
(án þess að ég sé nokkuð hlutdræg, frekar en fyrri daginn þegar systrabörn mín eiga í hlut..!) Set hérna aftur inn myndir af þeim bræðrum. Töluvert margir hafa spurt hvað kom fyrir Sindra, en hann olnbogabrotnaði á körfuboltaæfingu rétt fyrir jólin. Ég hef líka heyrt setninguna:"já hann er greinilega frændi frænku sinnar!" við sama tilefni..! Skil ekki af hverju 
Well, þetta er allavega það sem stendur uppúr á árinu hjá mér, þó að ég sé pottþétt að gleyma einhverju skemmtilegu sem ég gerði, og ég ákvað viljandi að sleppa því leiðinlega!! Enda eru það ekkert minningar sem maður á að geyma 
En ég hef trú á 2010, held að það verði fáránlega gott ár
Þannig að ég vil að endingu óska ykkur elskulega fólk, nær og fjær, (alla leið til Brasilíu jafnvel!
) gleðilegs nýs árs, þakka fyrir það gamla og biðja ykkur um að ganga hægt um gleðinnar dyr í kvöld, ekki fara að byrja nýja árið á einhverju rugli..!
hehe later peepz...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
jólastrákurinn :-D
28.12.2009 | 22:26
Þetta er ekki búinn að vera mjög hressandi dagur fyrir mig! Ég byrjaði á að vakna kl.3 í nótt og tölti fram á bað til æla! Albert rölti með mér og skellti svo framlöppunum uppá klósettsetuna og fylgdist með mér æla! Þeir eru svo eðlilegir þessir kettir sem ég á..! En svo vaknaði ég aftur um kl.7 með aðra gusu, og svo síðasta gusan kom rétt fyrir 11. Vá hvað ég hata svona gubbupestir! Tíminn sem líður frá því að manni er óglatt og þar til maður nær að losa er mesta ógeð í heiminum! En ég held að ég sé að braggast, er búin að ná að borða vel. Mamma kom með grænan frostpinna og Aquarius fyrir litla barnið sitt og svo kom Gunna Dóra með Serrano handa kellunni, talandi um að vera ofdekruð..!
En já, ég stefni á að vera orðin frísk á morgun...
Annars var tilgangurinn með þessu bloggi ekki að tala um ælur heldur að setja inn myndir af litla jólastráknum okkar, hérna er sem sagt litli kúturinn og Sindri flotti stóri bróðirinn 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
loksins loksins!
27.12.2009 | 23:29
Litla jólakrílið lét loksins sjá sig!!
heheh eitt fyndið, ég er þannig að ég man ekkert hvað ég er búin að segja hverjum, þannig að ég enda kannski á að segja einhverjum eitthvað 4 sinnum en gleymi alveg að segja einhverjum öðrum það!
Og greinilega er restin af fjölskyldunni minni svona líka!! Þórunn sys og fjölskylda sendu jólakort með áletruninni: "kv Meyvi, Þórunn, Sindri og jólakrílið" Bróðir pabba fékk kortið og hringdi svo í mömmu og pabba og byrjaði að ræða það hvað það hefði nú verið sniðugt hjá Þórunni og þeim að fá sér HUND og kalla hann jólakrílið! Þá hafði hann sem sagt ekki verið búinn að frétta að hún væri ólétt..! 
En já, litla jólakrílið er sem sagt strákur! Lítill fullkominn jólastrákur! 17 merkur og 52 sentimetrar.
Ég hélt hann væri algjör hlunkur miðað við uppgefnar tölur, en svo er hann bara slank og fínn. Með risastórar hendur og tásur og djúsí bollukinnar, en annars mjög grannur. Greinilega bara þungt í honum, verður lítið vaxtarræktarbúnt eins og Andri var, hef aldrei kynnst jafn mössuðu barni!
En já, ég er búin að vera brosandi upphátt í allan dag, þvílíkt hamingjusöm með þetta
(set hérna mynd af Andra, litlu hetjunni minni, set inn mynd af litla snúlla um leið og ég hef tækifæri til)
Og önnur stórtíðindi! Kellan skellti sér á djammið í gær!! Var komin uppí rúm fyrir kl.23 þegar Habban kom inná msn og sagði mér að henni leiddist, ég fattaði að mér leiddist líka og spurði hvort hana langaði á djammið, hún sagði já og þá tilkynnti ég henni að ég yrði komin eftir 40 mínútur og skipaði henni að byrja að sturta í sig..!
Á meðan ég sötraði pepsi maxið mitt þá hvatti ég hana til dáða við fljótandi tópas neyslu áður en við örkuðum svo af stað til að taka þátt í næturlífi Reykvíkinga. Fórum á Austur og vorum þar í rúma 2 tíma og þá ákvað ég að fara að koma mér heim á leið. En þetta var mjög gaman, soldið fyndið samt að ég er stundum skömmuð fyrir að tala of mikið um kettina mína en hver einn og einasti sem ég hitti (sem voru töluvert margir), spurðu hvað væri að frétta af kisunum mínum! Eða þau spurðu eftir að þau komust yfir sjokkið við að sjá mig actually downtown Reykjavík eftir miðnætti!! hehe en þetta var mjög gaman, hef gaman að því að fylgjast með drukknu fólki og vera ekki ein af þeim! Og svo nottla fáránlega næs að geta bara sest uppí bílinn sinn og keyrt heim, og vaknað eins og nýsleginn túskildingur daginn eftir 
Jæja ætla að fara að henda mér í svefn, samt fáránlega næs að vera í fríi, ætla að taka frí frá einkaþjálfuninni núna milli jóla og nýárs, nota tímann í að æfa vel og slaka á, og hlaða batteríin fyrir janúar törnina. Eeeen þó að ég sé í fríi þá er ég ekki mjög góð í að vaka lengi!
Þannig að ég býð bara góða nótt lömbin mín...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
jólajólajóla.....
25.12.2009 | 17:08
Vá hvað jólin so far eru búin að vera næs! Átti rosa fína aðfangadag hjá mömmu og pabba í gær, ásamt
Sveini Inga litla bró. Fékk þónokkrar skemmtilegar gjafir, m.a bók um þrífættan kött (skil ekki af hverju þeim fannst það eitthvað við hæfi!! hehe), dvd tæki frá bestu mömmu minni og pabba í heiminum (var reyndar búin að fá það áður, en það er að koma sér mjöööööög vel!), ógó flottan púða sem Þórunn sys bjó til sjálf (nei það er ekkert barn komið ennþá), body shop körfu, sem kemur sér alltaf vel, dvd mynd frá henni Helgu minni, og kerti o.fl skemmtilegt og krúttlegt.
Eftir matinn og jólastússið þá fór ég heim og beint uppí kúrusófann minn. Var búin að birgja mig upp af dvd efni og horfði á "The ugly truth" og svo nokkra þætti af KLOVN og vá hvað ég hef farið á mis við mikið í lífinu að hafa ekki horft meira á þessa þætti!! Þeir eru viðbjóðslega fyndnir!!
Ég veit að mörgum finnst ég mjög sorgleg, þrítuga kattakellingin
EN það er ekkert smá notalegt að liggja uppí sófa með kisurnar kúrandi og malandi hjá sér. Albert er orðinn mesta kelirófa í heimi, nottla þegar honum þóknast, en þá líka sleppur maður ekkert! Hann leggur mann eiginlega í einelti þegar hann vill fá knúsið sitt! En hann kúrði í tásunum á mér í gær!
Fáránlega þægilegt sko, hann hélt utan um kálfann á mér og lá svo oná fætinum, og svo á tímabili þá tróð hann andlitinu við ristina á mér og lá svo þannig í töluverðan tíma, eins og það væri bara alveg eðlilegt
æ sennilega auðveldast að setja bara inn myndir af þessu...
Svo komu Sveinn Ingi og Gunna Dóra til mín áðan í vídjógláp, osta, ritz kex og Doritos gums (gums = salsasósa, ostasósa og sýrður rjómi með osti yfir og hitað inní ofni). Við horfðum nottla á nokkra KLOVN þætti. Kellan er alveg að finna nýja hlið á sér hérna, ég er algjör letipúki eftir allt saman..!
Annars er ekkert jólaboð hjá mér í dag, ætlaði að reyna að taka því rólega, ekkert að æfa eða neitt en ég er eiginlega ekki að meika það, ætla allavega í göngutúr á eftir með Gunnzo, og gott ég tek
ekki einn skokkrúnt í leiðinni
og bíð spennt eftir að ræktin opni aftur á morgun! Svo er fjölskyldujólaboð á morgun og svo hittumst við nokkur vinirnir, sem erum svona sjálfstæð eins og það kallast, eða einstæð, eða sérstök, eða ófær um að mynda náin tilfinningaleg tengsl við aðra, eða hvað sem fólk vill kalla okkur
og ætlum að elda saman þann þriðja í jólum
Humm, reyndar held ég að ég sé orðin sú eina eftir sem er á lausu, og á ekki barn!
En "hefðin" byrjaði allavega af því að við vorum öll á lausu og höfðum ekkert betra að gera en að hanga með öðru fólki í sömu aðstöðu..! oh well, allavega fallegt af þeim að leyfa mér ennþá að fljóta með..! hehe
Jæja er að spá í að glápa á fangavaktina eða eitthvað svona letilegt, hafið það rosa gott um jólin *kossar og knús* frá mér, Alberti, Einstein og þessum ofursæta hundi hérna á kantinum (sko ég er ekkert sú eina sem er það klikkuð að klæða gæludýrin sín í jólabúning!!
) later peepz...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er photoshop mögulega það versta sem hefur komið fyrir kvenfólk??
23.12.2009 | 14:37
Eins og ég bloggaði um um daginn þá fór ég í myndatöku. Sem er reyndar mjög fyndið þar sem ég ÞOLI EKKI myndir af sjálfri mér, er mjög krítísk á þær, sem og bara sjálfa mig svona almennt. Er með hina ýmsu komplexa..!
En svo hefur ljósmyndarinn verið að sýna mér afraksturinn og sýndi mér myndir fyrir og eftir photoshop. Þegar ég sé þetta, og geri mér grein fyrir að allar myndir sem við sjáum í blöðum og jafnvel myndum, er photoshopað í drasl, þá átta ég mig líka á því að það er ekkert skrýtið að við konurnar séum með soldið fucked up líkamsímynd! Mig langar að sýna ykkur eina mynd, fyrir og eftir photoshop, og það er sko ekki auðvelt af því að mér finnst fyrri myndin draga fram allt það sem ég þoli ekki við eigið útlit!
En sem betur fer eru ekkert rosalega margir sem lesa bloggið mitt og svo get ég alltaf huggað mig við það að ykkar viðmið so far eru handboltamyndirnar þannig að samanburðurinn er nokkuð hagstæður..!
En allavega, here goes (getið smellt á þær til að sjá þær stærri):
En það sem er kannski klikkaðast við þetta allt saman er að ég er alveg að elska photoshopið sko, væri til í að ég gæti bara photoshopað mig dags daglega, verið bara alltaf svona slétt og fín í framan! En ætli það sé ekki bara skynsamlegast að sætta sig við að eldast og gera sér grein fyrir að ekki er allt sem sýnist, þessar Hollywood stjörnur eru ekkert svona fokking fabjúlös í alvörunni sko..! 
Annars er ég nottla einhvers konar snillingur sko! Var í þvílíkum gír þegar ég mætti með Halla og Robba í ræktina í morgun og setti upp rosa æfingu fyrir okkur, nema bara að í fyrsta setti í fyrstu æfingunni þá festist ég í hálsinum! Sem er fáránlega vont sko
og ég er pínu kryppluð eftir það, en píndi samt í gegnum einhvern slatta og var alveg ágætlega dugleg, sem var samt ekki helmingurinn af því sem ég ætlaði mér..! 
Fór svo í mat með henni Dóru, minni, Stefáns. Vorum geðveikt villtar og fórum á Serrano
Alltaf jafn gaman að hitta þessa elsku, love you litla mín 
Og svo beið ég eftir Gunnu Dóru sem ákvað líka að fara á Serrano og afgreiðslumaðurinn horfði á mig og svo bara: "hva, bara komin strax aftur??" En hann er svo sem vanur að fá mig á hverjum degi, en kannski ekki tvisvar með korters millibili sama daginn..! En Gunna sagði að ég væri einhvers konar genagalli! Og ég sagðist ætla að klaga í mömmu og pabba að hún hefði sagt þetta, því ég er jú búin til úr þeirra genum! En hún vildi þá meina að ég væri stökkbreytt og það hefði ekkert með þau að gera, þannig að við sættumst þá bara á þá málamiðlun að hún fengi ekkert jólakort frá mér en að öðru leyti myndi ég ekki erfa þetta við hana..! En ástæðan fyrir því að hún sagði að ég væri genagalli er sá að það er ekki eitthvað eitt að mér, það er algjörlega ALLT! En nottla ekki allt, ekkert eitthvað svona brjálæðislega alvarlegt, en fullt fullt fullt af litlu pirrandi drasli sem háir mér í lífinu, þannig að hún hefur nú alveg eitthvað til síns máls (en fær samt ekki jólakort sko! Reyndar fær enginn jólakort frá mér en það er allt annar handleggur...)
Jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti, á eftir að skúra og skipta á rúminu og þá er ég orðin good to go fyrir jólin
Later peepz....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
jólakisur o.fl
23.12.2009 | 00:00
Þá er langþráð jólafrí runnið upp! Er meirsegja búin að öllu, kaupa allar gjafir og pakka inn, á bara eftir að skúra og skipta um rúmföt þá er allt klárt!
Vá hvað ég hlakka til að eyða jólafríinu bara í ræktinni og uppí sófa þess á milli! 
Jólakrílið lætur enn bíða eftir sér, Þórunn sys sennilega að verða ansi þreytt á sms-unum frá mér þar sem ég er að fá status update!! En vá, greyið Sindri frændi lenti í því á körfuboltaæfingu í dag að olnbogabrotna!!
Fer í aðgerð á morgun þar sem þarf að setja pinna í handlegginn, allir að senda honum happy
thoughts 
Eins og þið sjáið þá eiga kisustrákarnir mínir jólaföt, og ég smellti myndum af þeim áðan. OK ég veitað fólki finnst ég sennilega eiginlega ekkert klikkuð, en ég lá í svo miklu hláturskasti þegar ég var að troða þeim í þetta og taka svo myndir!! En vá, þeir eru svoooooo umburðarlyndir gagnvart mér! Að láta hafa sig útí þessa vitleysu, en hérna er sýnishorn af myndunum, sætustu kisustrákar í heiminum!!
heheh jájá ég er crazy cat lady ég veit..! 
Jæja farin að lúlla, æfing í fyrramálið, later.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
......
19.12.2009 | 22:22
Enn eitt villta laugardaskvöldið gengið í garð hjá mér, var að klára að svæfa að lítinn 2 ára snilling,
sem var ekki sátt við að fara "rúlla" (lúlla) en sofnaði svo á 0.1 sek! Fyndið hvað krakkar vilja ekki fara að sofa þrátt fyrir að vera kannski að deyja úr þreytu!! Rétt áður en hún fór að sofa þá bað hún mig um hjálpa sér að laga sokkana sína, hún væri nebbla í krummafót!! hehe algjört krútt 
Annars er ég búin að vera fáránlega busy í fríinu mínu, búin að vera í strípum, litun, plokkun, vaxi og 2 jólaveislum, eiginlega bara úrvinda eftir síðustu 3 daga!! En fékk gott frí í dag og er í fríi á morgun, fyrir utan einhverja myndatöku sem ég er að fara í, sem ég sé reyndar soldið eftir að hafa samþykkt, er alveg með feituna og ljótuna á háu stigi núna
Eeeeen ég hef ofurtrú á ljósmyndaranum, að hann geti gert kraftaverk á mér 
Annars eru bara allir í heiminum að fjölga sér, ég eignaðist lítinn vinkonuson í fyrradag og Þórunn sys er komin 4 daga framyfir, sem þýðir að litla krílið fer að láta sjá sig hvað af hverju 
En ég ætla að halda áfram að horfa á Fred Claus og pirra mig á partýinu sem er í gangi fyrir ofan. Later...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


tungata
ragganagli
asako
ellahelga
allok
annasig
arndisthor
asdisran
bidda
bjarki85
blogger
danmerkufarar
eyvi
fjola
gastone
gledigjafinn
gunnarggg
habbakriss
helgikr
hulda2002
ingalily
jakobk
jonkibloggar
kamilla
maggaelin
malacai
olafurfa
skallinn
skens
smjattpatti
snorris
spiro
swaage
vitaminid
bleikaeldingin
id
pro-sex
sasudurnesjum
hrollvekjur
gattin
sporttv