Jájá ég er að fara að læra!!
26.4.2007 | 20:50
Eru fleiri en ég komnir með uppí háls af mótmælendum?? Og atvinnumótmælendur, hvað er það?? Þeim virðist vera alveg sama hverju þeir eru að mótmæla svo lengi sem þeir fá borgað fyrir það!! Mér finnst það mjög spes, og eiginlega bara frekar vafasamt! Ég hélt að mótmælendur myndu mótmæla hlutum sem þeir hafa ástríðu fyrir eða snerta þá á einhvern hátt. Ekki að mótmæla og jafnvel fremja skemmdarverk af ástæðum sem það veit ekki einu sinni sjálft hverjar eru! En mér finnst bara gott hjá löggunni að svara fyrir sig og minna fólk á að kokgleypa ekki við öllu sem "greyið" mómælendurnir bera uppá lögregluna, það er sorglegt hversu oft þetta fólk (ef þetta hljómar eins og fordómar gegn "þessu fólki" þá má alveg túlka það þannig!) fær að vaða uppí fjölmiðlum og koma með hádramatískar lýsingar á illri meðferð lögreglunnar! Og kannski líka sorglegt hversu margir trúa "grey" mótmælendunum og finnst fínt að fá ástæðu til að rægja lögregluna, allt í lagi að hnippa aðeins í fólk og minna á að það sem fjölmiðlar segja er ekki endilega heilagur sannleikur, þeir þrífast nebbla á því að setja upp dramatískar fréttir en eru kannski ekki jafn mikið að stressa sig á sannleiksgildi frásagnarinnar! Reyndar finnst mér lögreglunni of þröngar skorður settar, en ég er allavegna komin með nóg af þessum mótmælendum, af hverju fá þeir sér ekki vinnu eða reyna að finna sér eitthvað gáfulegra að gera við frítíma sinn?? Go löggan..!
|
Lögregla biður landsmenn að taka fréttum frá mótmælendum með gagnrýnum huga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



tungata
ragganagli
asako
ellahelga
allok
annasig
arndisthor
asdisran
bidda
bjarki85
danmerkufarar
eyvi
fjola
gastone
gledigjafinn
gunnarggg
habbakriss
helgikr
hulda2002
ingalily
jakobk
jonkibloggar
kamilla
maggaelin
malacai
olafurfa
skallinn
skens
smjattpatti
snorris
spiro
swaage
vitaminid
bleikaeldingin
id
pro-sex
sasudurnesjum
hrollvekjur
gattin
brandurj
sporttv
Athugasemdir
Heyr,heyr... bloggaði einmitt um það sama í dag og gæti ekki verið meira sammála
Örvar Þór Kristjánsson, 26.4.2007 kl. 22:24
Það má nú kannski ekki setja alla mótmælendur undir sama hatt útfrá örfáum einstaklingum. Staðreyndin er sú að við gerum alltof lítið af því að mótmæla, þess vegna er hægt að bjóða okkur upp á hvaða bull sem er.
Margrét Birna Auðunsdóttir, 27.4.2007 kl. 10:42
já ég er alveg sammála að oft mætti vera meiri samstaða hjá þjóðinni í mótmælum, en ég er nú bara að tala um þessa mótmælendur sem eru að mótamæla virkjun sem er tilbúin (hvað halda þeir að muni gerast? að henni verði lokað?) og er á stað sem enginn þeirra hafði áhuga á að skoða áður en það komst í tísku að vera náttúruverndarsinni (auðvitað er ég náttúruverndarsinni, en ég er líka mjög hlynnt bættum lífskjörum manneskja). Og þessir hálfvitar sem eru að fremja skemmdarverk í nafni mótmæla eru þeir sem ég er að tala um, held þeim sé nokk sama um þessa virkjun, eru bara, að mínu mati, að fá útrás fyrir annarlegar hvatir..!
Bjarney Bjarnadóttir, 27.4.2007 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.